Broguð kynjahlutföll á Bessastöðum
Síðdegis í dag var ég viðstaddur afhendingu Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands á Bessastöðum. Verðlaunin að þessi sinni voru gefin af Viðskiptaháskólanum á Bifröst en þau samanstóðu af peningaverðlaunum og listaverki sem hannað var af Elísabetu Haraldsdóttur, leirlistakonu á Hvanneyri. Verkið er bjartur og fallegur keramiktindur sem endurspeglar bæði fjöllin hér í Borgarfirði og þann akademíska tind sem ungir fræðimenn þurfa að klífa til að ná árangri.
Það var hins vegar afar sérstakt að vera viðstaddur þessa verðlaunaafhendingu. Þegar formaður dómnefndar kynnti tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands fyrir verkefni háskólanema á Íslandi, kom í ljós að þau fjögur verkefni sem tilnefnd voru, eru öll unnin af karlmönnum. Þess má einnig geta að allir leiðbeinendur drengjanna eru karlar!
Staðan á Bessastöðum þetta síðdegið var því þannig að þar stóðu, að mér sýndist, 14 eða 16 karlar sem fulltrúar ungra fræðimanna og vísindasamfélagsins á Íslandi. Í þessu samfélagi virðist því takmarkað rúm fyrir konur. Formaður dómnefndar sagði okkur að um 140 verkefni hefðu komið til greina sem verðlaunahafar. Getur það verið að á meðal 140 ungra fræðimanna hafi ekki verið nein hæf kona? Getur það verið að ekkert verkefni ungra kvenna hafi hér náð máli? Hvort eru þá ungar konur í íslensku fræðasamfélagi óhæfar eða einskis metnar? Hvaða skilaboð er vísinda- og fræðasamfélagið að senda til kvenna?
Þetta eru meðal annars þær spurningar sem vöknuðu hjá mér við þessa athöfn. Við þeim á ég ekki svar en verð að játa að ég gekk frá Bessastöðum í dag með þá tilfinningu að okkar þátttaka í þessu verkefni væri ekki til þess fallin að auka jafnrétti kynjanna á Íslandi.
Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands eru öðru fremur hvatningarverðlaun til ungs háskólafólks. Þeirri hvatningu var ekki beint til ungra kvenna að þessu sinni.
23. February 2006 kl. 23:40
Heyr, heyr! Gott hjá þér að vekja athygli á þessu!!!
hs
24. February 2006 kl. 10:42
Eru þetta ekki full drastískar ályktanir? Ég hef nú ekki skoðað það en hvernig hafa tilnefningar verið hingað til? Hvernig er kynjahlutfall umsókna?
Menn eru alltof fljótir að draga ályktanir. T.d. var símakönnun þín um launamisrétti bifrestinga ekkert til að verðlauna.
24. February 2006 kl. 11:21
Ég var viðstödd þessa sömu afhendingu og verð ég að viðurkenna að þetta skar líka í mín augu.
Varð eiginlega hálf móðguð fyrir hönd míns kyns og hugsaði um þetta lengi kvölds.
Hvers vegna ? Veit ekki heldur..
24. February 2006 kl. 11:27
Sá þetta inn á visir.is. Er sammála HS hér fyrir ofan, flott að vekja athygli á þessum “broguðu kynjahlutföllum á Bessastöðum”
24. February 2006 kl. 11:54
Verkefni mitt var eitt hinna fjögurra sem tilnefnd voru. Ég tek undir með Runólfi að þessi kynjahlutföll (eða öllu heldur skortur á hlutfalli) komu leiðinlega á óvart. Ég hélt að hin tilnefndu verkefni ættu að endurspegla breiddina í fræðasamélaginu; ólík fræðasvið, ólíka háskóla og auðvitað bæði kynin.
Nú gætu fjögur bestu verkefnin vissulega verið svipuð, t.d. öll snúist um nýjungar í hagfræði - og öll unnin af nemendum á Bifröst. Líklega þætti einkennilegt að tilnefna fjögur svo lík verkefni þótt verðug væru.
Auðvitað hefði það getað verið verkefnið mitt sem hefði orðið af tilnefningu ef þess hefði væri gætt að bæði kyn ættu sína fulltrúa. En það skiptir litlu máli. Þvert á móti má segja að því það rýrir gildi tilnefninganna svolítið að hafa þennan karlaverðlaunastimpil á sér. Þær hefðu örugglega orðið hinum tilnefndu og auðvitað verðlaunahöfunum enn ánægjulegri ef þessi annmarki hefði verið sniðinn af.
Þrátt fyrir þessa gagnrýni ber að þakka Nýsköpunarsjóði námsmanna og bakhjörlum hans fyrir að gera námsmönnum kleift að stunda rannsóknarvinnu með þeim árangri sem raun ber vitni.
24. February 2006 kl. 12:11
Takk fyrir að vekja athygli á þessu. Þetta er umhugsunarvert og gaman væri að fá upplýsingar frá þeim sem völdu einstaklingana hvað réði valinu.
24. February 2006 kl. 15:09
Sæll Runólfur
Mér þykir þú svolítið fljótur að draga ályktanir af þessari ágætu samkomu. Þú veist ekkert um hlutfall kynja í þessum hópi - kannski voru engar konur í hópnum eða kannski var fullt af þeim og verkefni þeirra ekki nógu góð. Kannski eru konur einfaldlega ekki þátttakendur í svona keppnum þótt auðvitða væri æskilegt að kynjahlutföllin væru jöfn eða næstum því.
Þetta minnir svolítið á útspil þitt varðandi launamun kynjanna í fyrra sem var, satt að segja, afskaplega vanhugsað.
En þú meinar vel og það skiptir mestu máli - allt heilbrigt fólk vill sjá breytingar á þessum sviðum - hvort sem það er meintur launamunur kynjanna (ef hann er til staðar) og jafnari hlutföll kynja í svona keppnum. Og víða auðvitað. Haltu áfram baráttunni !
O.K.